laugardagur, maí 10, 2003

Ég er svo aldeilis... ég er svo brjáluð af heift að ég kem ekki upp aukateknu orði.

Nú munu hausar fá að fjúka!!

Kæru landsmenn!

Fylkið liði á kjörstað og setjið X við
- eina flokkinn sem skiptir máli
- eina flokkinn sem kann að tala við litla manninn
- eina flokkinn sem er í nánu sambandi andans heim
- eina flokkinn sem er í góðu formi
- eina flokkinn sem býður upp á raunsæjar lausnir
- eina flokkinn með jafn glæsilega frambjóðendur
- eina flokkinn sem vill auka bæði mannúð og munúð í þínu lífi
- eina flokkinn nýtir sér stuðning Eista
- eina flokkinn sem vill stuðla að öruggum sigri í Eurovision
- eina flokkinn sem vill auka atvinnutækifæri í landinu með því að bjóða upp á geimferðaáætlun
- eina flokkinn sem getur gert mig (Fúlhildi Ljótbjörgu Elínbergsdóttur) að forsætisráðherra
- eina flokkinn með listabókstafinn M! Mikilfengleiki! Manngæska! Minningar! Meðlæti! Mannúð! Munúð!



fimmtudagur, maí 08, 2003

Your Hedwig song is: Midnight Radio!
Your Hedwig song is: Midnight Radio!


Which ''Hedwig'' song are you?
brought to you by Quizilla


Jæja, þá er hún Rhonda loksins komin. Í upphafi kosningabaráttunnar ákváðum við John að best væri fyrir mig að reyna að koma mér í gott líkamlegt form til að geta haldið í við alla hina frambjóðendurna, auk þess að verða enn frambærilegri á myndum. Svo vel vildi til að John þekkir hæfileikaríka líkamsræktarkonu sem hefur mikla reynslu af einkaþjálfun stjórnmálamanna. Eftir nokkur langlínusamtöl tókst John að telja hana á að koma hingað og þjálfa mig. Ég fékk aldrei á hreint hvernig hún og John þekkjast, en þau virðast nokkuð náin. Rhonda lenti hins vegar í mesta basli við að fá vegabréfsáritun og var bara að koma rétt í þessu. Þar sem einungis 2 dagar eru til kosninga er ljóst að nú þarf að taka á! Annars verður líklega ekki vanþörf á einkaþjálfara þegar annir forsætisráðherraembættisins taka við.
Myndinni hér til hliðar smellti ég af henni þegar hún var nýkomin inn úr dyrunum, en nú er hún að setja upp hlaupabretti og stigvél í stofunni og semja æfingaprógram. Ég þarf hins vegar að fara að leita að bleika glansgallanum mínum sem ég notaði í leikfimitímunum sem ég sótti á áttunda áratugnum. Þegar maður er í framboði getur maður ekki bara kastað sér í hvaða föt sem er - ekki einu sinni í líkamsræktinni.

Samkvæmt nýjustu könnun sem ég tók er ég Audrey Hepburn:



You're Audrey Hepburn...and classy is your middle
name. You're an angel and you never think about
yourself but what you can do for
others...loverly!


What actress are you?
brought to you by Quizilla


miðvikudagur, maí 07, 2003

Ég gat loksins sparkað í rassinn á Ríkey og fengið hana til að klára að koma kosningalaginu á netið. Hún rankaði við sér um fjöguleytið í dag en það var sama hvað ég reyndi; ég gat ekki komið henni úr sófanum fyrr en hún var búin að horfa á alla þættina af Pride & Prejudice sem ég á á spólum. Fyrir svona hálftíma síðan náðu Darcy og Elizabeth saman og get ég því loksins deilt þessu dásamlega lagi með ykkir. Kunningi minn hafði stungið upp á því að eistlenska lagið í Eurovision keppninni ár væri alveg kjörið sem baráttulag M-listans. Tókum við hann á orðinu, löguðum stefnuskrárljóðið að laginu og afraksturinn lét ekki á sér standa! Það er ég sem syng lagið (hvort sem þið trúið því eða ekki hef ég aldrei lært söng!) og Ríkey sá um bakraddið. Takið svo hressilega undir!

Kvótakerfið er mér kært
kenjótt sem það er (úú vává)
ég frelsa það þá verður fært
að færa mér og þér
jafnan aðgang hér (durumpbumpbump)

Hógvær heimta ESB
hlakk' að vera memm (úú vává)
býð öllum upp á KFC
sem álpast nið'r á Hlemm
og x-a svo við M (durumpbumpbump)


Ég heimta XM alls staðar
ég heimta XM til framtíðar
ég heimta XM útum
XM útum
XM útum
XM útum allt

Stjórnarsamstarf stefni á
samlífið er ljúft (úú vává)
leiðtogahlutverk læt ei fá
er lagar mig of djúpt
og andlitið er hrjúft (durumpbumpbump)


Símavændi stunda hýr
syng um hjartans mál (úú vává)
Framboðið í fremsta gír
ég fræði Pétur og Pál
með púrtvín vel við skál (durumpbumpbump)

Ég heimta XM alls staðar
ég heimta XM til framtíðar
ég heimta XM útum
XM útum
XM útum
XM útum allt
XM útum allt

Eftir mikla leit fannst myndavélin loksins vandlega troðið í þvottapoka inni í baðherbergisskáp. Þegar ég var búin að hlaða hana á ný sá ég mér til mikillar skelfingar að Ríkey hafði tekist að eyða megninu af þeim 70 myndum sem teknar voru í gær. Í staðinn voru komnar afar vafasamar myndir af Ríkey og Colgate tannkremstúpu. Sem betur fer voru nokkrar fyrir og eftir myndir ennþá í myndavélinni og því get ég sýnt ykkur lesendur góðir afrakstur umbreytinganna:

Fyrst er það myndin af mér óuppstrílaðri í fallega fjólubláa sloppnum mínum - ef ég virka þreytulega vil ég fullvissa ykkur kjósendur góðir að það er aðeins vegna þess hve hart ég hef lagt að mér að undirbúa kjörtímabil mitt:



Síðan koma nokkrar eftir meikóverið. Ég fékk mér nýjan og glæsilegan hatt í tilefni kosninganna og verð bara að segja að ég er nokkuð ánægð með útkomuna:


Hérna er ég alvarleg - virðuleg.




John kom inn í herbergið.
Ég varð að gefa honum auga ;)




Horfi einbeitt inn í framtíðina.



Hvernig finnst ykkur svo útkoman?

Stjörnurnar eru í heillavænlegri stöðu í dag og því hef ég ákveðið að nota þennan dýrðardag til (hóflegra) umbreytinga á útliti mínu í takt við þá stefnu sem virðist ríkjandi meðal annarra frambjóðenda. Í gærkvöldi nýtti ég mér að auki hina óvenjusterku orku himintunglanna við að kyrja stefnuskrá mína inn á stafrænt form og get fullyrt að þar stend ég feti framar en samkeppnisaðilar. Ríkey aðstoðaði mig og var hjálp hennar ómetanleg, þrátt fyrir að hún gæti varla staðið í fæturna fyrir ofurölvun. Hún hefur ekki lagt frá sér bjórflöskuna frá því hún var rekin og sveimar um stofuna mína eins og grár köttur. Nú er bara að koma þessu öllu inn á síðuna, en það get ég ekki fyrr en Ríkey drattast á fætur (hún drapst í sófanum) og finnur digital myndavélina sem hún var að leika sér með inni á baði í gær.

mánudagur, maí 05, 2003

cyclops
You are Cyclops!



You are attractive and strong, in a boy scout
republican sort of way. You are set firm in
your beliefs, which is not necessarily a bad
thing. But often when faced with a conflicting
opinion you become defensive and angry and
prone to conflict. You like to be a leader,
but you must acknowledge that there are some
situations which others are better fit to deal
with than yourself.


Which X-Men character are you most like?
brought to you by Quizilla


Það hefur ótrúlega mikið verið að gerast í mínu lífu undanfarið og ég hef ekki haft mikinn tíma til að blogga - rétt svo náð að setja inn Eurovsion lag dagsins. Helgin fór öll í framboðsmál og gengur bara vel. Ég er að vísu svolítið áhyggjufull yfir því að M-listinn skuli ekki mælast í skoðanakönnunum en Ríkey fullvissar mig um að um samsæri fjölmiðlafólks sé að ræða. Hún er víst ekki í náðinni í þeirri starfstétt eins og er. Enda hafa mínar eigin skoðanakannari sýnt fram á allt annað:



Nú vantar bara að brúa þetta litla 2% bil og þá er ekkert sem fær stöðvað mig. Og allt framboðið að sjálfsögðu. Góðu fréttirnir eru auðvitað þær að stjórnin en fallin og ljóst er að M-listinn muni leiða stjórnarmyndunarviðræður. Ég vil ekki upplýsa að svo stöddu hvaða flokka ég kýs að mynda stjórn með en það ætti engum að dyljast að ég er forsætisráðherraefni flokksins, Karítas verður menntamálaráðherra, Ríkey fjármálaráðherra og Jóa er búin að panta dómsmálaráðherrastólinn (svo hún geti verið Gústa sínum innan handa í starfi.)